Þerapía // Tónheilun.is
Galdra Tónleikar með Olivia Fern 17. okt kl 20.
Galdra Tónleikar með Olivia Fern 17. okt kl 20.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Það gleður okkur ótrúlega mikið að fá hina dásamlegu listakonu Olivia Fern til okkar og okkur langar að kynna hana aðeins betur fyrir ykkur.
Það er mjög líklegt að þú þekkir nú þegar einhverja af tónlist Olivia án þess að hafa endilega vitað hvað hún heitir. Tónlist hennar hefur fundið sér stað langt út fyrir hefðbundin tónleikasvið — í jógaferðum, heilunarrýmum, athöfnum, hugleiðslu, meðvituðum samverustundum og umbreytandi viðburðum.
Tónlist hennar fjallar meðal annars um heilun, sjálfsskoðun, tengingu við náttúruna, ást og að finna leiðina heim til sjálfs sín. Þess vegna hefur hún snert svo sterkt við fólki innan jóga-, medicine music- og meðvitaðra samfélaga um allan heim.
Mörg laga hennar, þar á meðal The Moon’s Song og Calling Us Home, hafa náð til milljóna manna og snert hjörtu um allan heim.
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn kl 20 í Skálanum Gufunesi
Deila
