Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

Þerapía // Tónheilun.is

Nærðu taugakerfið með Tónheilun með Berglindi og Lovísu 17 ágúst kl 17.15 í Bolholti 4.

Nærðu taugakerfið með Tónheilun með Berglindi og Lovísu 17 ágúst kl 17.15 í Bolholti 4.

Venjulegt verð 6.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 6.900 ISK
Útsala Uppselt
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Ferðalag Berglindar í heildræna heilun hófst 2020. Hún hefur starfað sem m.a sem tónheilari síðan 2022 og verið með ýmsa tónheilunar eventa síðan þá m.a í Yogashala, Umi og Yogavin. Tónheilun hefur verið stór þáttur í sjálfsheilun hennar og að heila aðra.

Berglind er einnig menntaður Fjölskyldu og Hjónabandsfræðingur (MFT) og hefur starfað í 12 ár sem meðferðaraðili með hópum, einstaklingum og pörum og notar ýmsar aðferðir til þess.

 

Ferðalag Lovísu í heildræna heilun hófst árið 2017 þegar hún fór að vinna markvisst með sjálfa sig, eigin reynslu og innri vöxt. Tónheilun hefur verið hennar helsta lækning á þeirri vegferð og hún hefur sjálf unnið með tónheilun í nokkur ár.

 

Lovísa er menntuð jógakennari og hefur einnig lært markþjálfun, heilun og ýmis önnur námskeið á sviði heildrænnar vellíðanar. Í dag miðlar hún reynslu sinni og þekkingu af hlýju og nærveru með það að markmiði að skapa rými þar sem fólk getur slakað á, tengst sjálfu sér og fundið innri ró.

Tónheilun er heildræn iðkun sem nýtir lækningamátt hljóðs, fornrar visku og nútímavísinda. Hún endurheimtir jafnvægi, stuðlar að slökun og eykur vellíðan með því að nota samræmda tóna, titring og tíðni.Orkukerfi líkamans opnast og styrkist, það losnar um spennu og kvíða og úrvinnsla áfalla og erfiðra tilfinninga verður auðveldari.

Eina sem þú þarft að gera er að gera going, greiða í gegnum tickets og mæta í þeim fötum sem þú ert í og allt er á staðnum. Gott er að mæta amk 10 mín fyrir tímann til að koma þér vel fyrir. Tíminn byrjar kl 17:15 og er hurðin læst kl 17:15 og ekki hægt að koma inn ef tíminn er byrjaður.

Hlökkum til að sjá þig í Bolholti 4.4 hæð 17 ágúst kl 17:15.

Berglind og Lovísa

 

Skoða allar upplýsingar