Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

Þerapía // Tónheilun.is

Radd og söngnáskeið með Arnmundi Bacman

Radd og söngnáskeið með Arnmundi Bacman

Venjulegt verð 29,900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 29,900 ISK
Útsala Uppselt
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

RADD- OG SÖNGNÁMSKEIÐ MEÐ ARNMUNDI BACKMAN er 4 vikna námskeið í Bolholti 4 sem snýr að opnun raddarinnar. Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja kynnast og skilja rödd sína betur til að auka sjálfstraust og frelsi bæði í söng og tali. 

 Námskeiðið er byggt upp á eftirfarandi þáttum: 

 1. Að kynnast röddinni betur og átta sig á hvaða lykilþættir spila inn í raddbeytingu. Hvað verður til þess að rödd þreytist, læsist eða skorti styrk?

2. Tæknileg aðferðafræði og æfingar til að styrkja og opna röddina.

3. Að varpa ljósi á samspil líkama, tilfinninga og raddarinnar og hvaða þátt slökun og spenna spilar í þeim skilningi. 

 Á námskeiðinu er stuðst við öndun, teygjur, raddæfingar og söng - svo þáttakendur öðlist aukinn skilning á: 

 1.  Áhrif líkamsvitundar á rödd.

2. Hverjar eru fyrirstöður sterkar raddar?

3. Hvernig tölum við svo það sé hlustað á okkur?

4. Hvernig á ég heilbrigt samband við eigin rödd? 

 Námskeiðið hefst 3.nóvember og fer fram á 3,10,17 og 24 nóvember klukkan 17:00 og stendur yfir í 90 mínútur. 

 



Skoða allar upplýsingar