Þerapía // Tónheilun.is
Tónheilunar Tónleikar með Arnmundi og Berglindi 1. okt í B4 kl 19:30
Tónheilunar Tónleikar með Arnmundi og Berglindi 1. okt í B4 kl 19:30
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Arnmundur og Berglind ætla að sameina galdra sína á þessu fallega októberkvöldi þar sem innifalið verður tónheilun, söngur, öndun og galdrar sameinaðir
Arnmundur hefur starfað sem leikari og söngvari, samhliða því að kenna námskeið í söng og núvitund. Tónlistina samtvinnar hann önduraræfingum og hugleiðslu þar sem áhlustendur fá færi á að kynnast sinni eigin rödd, styrkleikum hennar og krafti, til að finna aukið frelsi í raddbeytingu.
Ferðalag Berglindar í heildræna heilun hófst 2020. Hún hefur starfað sem m.a sem tónheilari síðan 2022 og verið með ýmsa tónheilunar eventa síðan þá m.a í Yogashala, Umi og Yogavin. Tónheilun hefur verið stór þáttur í sjálfsheilun hennar og að heila aðra.
Berglind er einnig menntaður Fjölskyldu og Hjónabandsfræðingur (MFT) og hefur starfað í 12 ár sem meðferðaraðili með hópum, einstaklingum og pörum og notar ýmsar aðferðir til þess.
Tónheilun er heildræn iðkun sem nýtir lækningamátt hljóðs, fornrar visku og nútímavísinda. Hún endurheimtir jafnvægi, stuðlar að slökun og eykur vellíðan með því að nota samræmda tóna, titring og tíðni.Orkukerfi líkamans opnast og styrkist, það losnar um spennu og kvíða og úrvinnsla áfalla og erfiðra tilfinninga verður auðveldari.
Eina sem þú þarft að gera er að gera going, greiða í gegnum tickets og mæta í þeim fötum sem þú ert í og allt er á staðnum nema þetta er sitjandi viðburður og má mæta með jógastóla annars eru púðar, teppi og dýnur. Gott er að mæta amk 10 mín fyrir tímann til að koma þér vel fyrir. Þessi viðburður byrjar kl 19:30 og er hurðin læst kl 19:30 og ekki hægt að koma inn ef viðburður er byrjaður. Gengið inn bakdyramegin. Húsið er læst að framan.
Deila
